M2 Fasteignasala kynnir - Snyrtilegt 146fm iðnaðarbil á tveimur fastanúmerum við Hólmbergsbraut 17, Reykjanesbæ. Auðvelt að breyta í tvær minni einingar, húsið er notað sem eitt bil í dag.
Eignin Hólmbergsbraut 17 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 236-7252 birt stærð 78,4 og eign 232-6095 eða samtals birt stærð 146.0 fm.* Tvær innkeyrsluhurðir sitt hvoru megin við húsið.
* ca. 35fm milliloft með wc sem ekki er inní fermetratölu hússins.
* Góðar leigutekjur! Húsnæðið er nýtt undir duftlökkun í dag.Um er að ræða stálgrindarhús á steyptum sökkli klætt með yl-einingum.
Tvær stórar innkeyrsluhurðir eru í rýminu ein sitthvoru megin við húsið ásamt inngönguhurð.
Húsnæðið hentar vel fyrir ýmsan rekstur og stutt er í flugþjónustusvæði Keflvíkurflugvallar.
Gott geymslurými á millilofti, salerni með handlaug. (Ekki inní fermetratölu hússins)
Húsnæðið er í leigu og endurnýjast í janúar 2026.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.