Opið hús: 30. apríl 2025 kl. 18:00 til 18:30.Opið hús: Dalsbraut 3, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 02 02 03. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. apríl 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.
M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - Snyrtilega 3.herb íbúð á 2.hæð við Dalsbraut 3, Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ.
Eignin Dalsbraut 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-2255, birt stærð 74.2 fm. Íbúð merkt 203.* Fjölbýlishús með lyftu
* Rúmgóðar svalir
* Göngufæri við Akurskóla og StapaskólaAnddyrið er flísalagt með fataskáp innar eftir ganginum.
Tvö svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi
Eldhús með hvíta innréttingu, keramik helluborð og ofn. Innbyggð uppþvottavél.
Stofa/borðstofa með parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, stór sturta með hurð og innrétting. Upphengt wc og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara inná baðherbergi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð hússins, ca 5 fm.
Húsið er staðsteypt,klætt að utan með bárujárnsklæðningu.
Gluggar eru úr áli að utan og timbri að innan, timbur/álgluggar frá Byko.
Svalagangar eru vindvarðir með samlímdu öryggisgleri.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.