M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu -
Glæsilegt einbýlishús á einni hæð við Birkidal 8, Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ. * 4 Rúmgóð svefnherbergi
* Mikil lofthæð og glæsilegar innréttingar með Granít á borðum
* Innihurðir eru 230cm á hæð
* Rúmgóð verönd með heitum potti
* Göngufæri við nýjan skóla og leikskóla Stapaskóla
* 30 mín ökufjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu Eignin Birkidalur 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 230-5252, birt stærð 210.0 fm. Íbúðarhluti er 173,7fm og bílskúr 36,3fm.
Forstofa með flísum á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum.
Stofan og eldhús eru í opnu rými með mikilli lofthæð, flísar á gólfum sem að teygja sig inn svefnálmuna.
Eldhúsið er með fallegri hvítri háglans eldhúsinnréttingu í bland við Hnotu með hvítri Granít borðplötu. Svalahurðin er á milli stofu og eldhúss en þaðan er útgengt á stóran sólpall.
Gestabaðið er flísalagt með svörtum háglans flísum, hnotu innréttingu með granítborðplötu, upphengdu salerni og innbyggðum sturtutækjum.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott en inn af hjónaherberginu er
fataherbergi með rennihurð ásamt
baðherbergi en það er flísalagt í hólf og gólf með ljósum marmaraflísum á gólfi og dökkum flísum við bað og sturtu ásamt svalahurð sem að liggur út á sólpallinn og þar eru tengi fyrir heitan pott. Stórt baðkar, hnotu innrétting með granít, upphengt salerni ásamt hlaðinni sturtu með innbygðum tækjum.
Þrjú barnaherbergi öll mjög rúmgóð og eitt af þeim er einnig með fataherbergi.
Þvottahúsið er rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu og skolvask og gengið er í gegnum það til að komast inn í bílskúr.
Bílskúrinn er með flísar á gólfi og milliloft.
Stór sólpallur liggur meðfram húsinu. **Þetta er virkilega falleg eign innarlega í lokuðum botnlanga**Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.