M2 Fasteignasala kynnir - Neðri sérhæð við Ásabraut 3, 245 Sandgerði, Suðurnesjabæ.
Eignin Ásabraut 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-4607, birt stærð 106.5 fm, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-4607 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin er laus við kaupsamning.Forstofu með flísum á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi og grárri innréttingu.
Stofa er með parket á gólfi.
Svefnherbergisgangur er með parketi á gólfi.
Þrjú svefnherbergi með parket á gólfum og hurð út á afgirta verönd út frá einu herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, skápur og bað.
Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting og skol vaskur.
Rakaskemmdir eru í eigninni.Seljandi eignaðist fasteignina í fullnustuaðgerðum og hefur ekki haft afnot af eigninni og þekkir ekki til hennar umfram opinberar upplýsingar.
Skorað er á tilboðsgjafa að kynna sér ástand eignarinnar í samræmi við það. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.