Aspardalur 1, 260 Njarðvík
70.800.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
108 m2
70.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
55.600.000
Fasteignamat
58.350.000

M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - Glæsilega 4.herb íbúð á 2.hæð við Aspardal 1, Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ.

Eignin Aspardalur 1 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 250-6018, birt stærð 108.2 fm. Eignin skiptist í íbúð á hæð 102,4 ferm. og sérgeymsla á jarðhæð 5,8 ferm.

* 4. herbergja endaíbúð með sérinngangi á 2. hæð.
* Mjög vel staðsett og er Stapaskóli í göngufæri frá eigninni.
* Yfirbyggðar 19 fermetra svalir sem snúa í austur.
* Sérmerkt bílastæði er fyrir íbúðina
* Á bílaplani eru tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla.
* Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og lerki klæðningu.  Gluggar og útihurðir eru úr ál og tré.


Nánari lýsing eignar:

Forstofa er parketlögð, fataskápur.
Stofa er parketlögð og hurð er frá stofu út á yfirbyggðar 19 fermetra svalir
Eldhús  parket á gólfi, þar er góð innrétting, ofn, helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
2. Barnaherbergi, parket á gólfum, fataskápur í báðum herbergjum.
Baðherbergi, flísar á gólfi og á vegg að hluta, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, sturtuklefi og upphengt salerni.
Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
 
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.