Hólmbergsbraut 13 bil 5, 230 Keflavík
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
107 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
14.300.000

M2 Fasteignasala kynnir til sölu staðsteypt iðnaðar- eða geymsluhúsnæði við Hólmbergsbraut 13, bil 5, 230 Reykjanesbær. Rýmið er á einni hæð með tveimur inngangshurðum með möguleika á millilofti.
Nýbygging sem samanstendur af 14 iðnaðarbilum sem henta sérstaklega vel fyrir smáiðnað, geymslu eða sambærilega starfsemi.


Eignin Hólmbergsbraut 13 bil 5 er skráð sem hér segir hjá fasteignaskrá HMS: Eign 253-4076, birt stærð 107.6 fm, nánar tiltekið eign merkt 01-05.

* Innkeyrsluhurð er 4,0m á breidd og 4,2m á hæð.
* Möguleiki á millilofti.
* 14,8m á lengd og 6,9m á breidd.
* Lofthæð upp í mæni er 6,9m.


Notkun: Iðnaðar- eða geymsluhúsnæði (notkunarflokkur 1).

Lýsing eignar
Eigninni er skilað án innveggja og innréttinga, sem veitir kaupanda sveigjanleika til að aðlaga rýmið að sínum þörfum.
Möguleiki er á uppsetningu millilofts.
Engar snyrtingar eru settar upp, en lagnakerfið gerir ráð fyrir að kaupandi geti komið þeim fyrir síðar.

Byggingarlýsing
Byggingin er úr staðsteyptum veggjum með steyptum innveggjum milli rýma.
Þak klætt með samlokueiningum úr steinull á límtrésbitum.
Útveggir einangraðir með steinull og klæddir lyggjandi báruáli.
Gluggar: Álgluggar með tvöföldu einangrunargleri.
Hurðir: Tvær inngangshurðir (framan og aftan) auk innkeyrsluhurðar með mótoropnun.
Loftræsting: Almenn loftræsting með opnanlegum fögum.
Hvert bil hefur eigið kaldavatnsinntak, hitaveituinntak og rafmagnstöflu.
Gólf: Steypt og afhent án frekari frágangs.

Lóð og aðkoma
Lóðarstærð: 3.841,2 m² – skilgreind sem iðnaðar- og athafnalóð.
Bílastæði: Tvö stæði fylgja hverju bili.
Aðkoma: Malbikuð að framan, grjóthleðsla eða sambærilegur frágangur aftan við byggingu.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.