M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - Snyrtilega 2.herb íbúð á 1.hæð við Ásabraut 7 í Keflavík, Reykjanesbær.
Eignin Ásabraut 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-6851, nánar tiltekið eign merkt 00-01, birt stærð 58.9 fm.
* Endurnýjaðir gluggar, útihurð og svalahurð.
* Baðherbergi hefur verið endurnýjað.
* Stutt í alla þjónustu, staðsett miðsvæðis í Keflavík.
* Verönd bakatilForstofa með flísum.
Sameignlegt þvottahús innaf forstofu.
Hol er með vínilparketi á gólfi. Geymsluskápur undir stiga.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta með gleri, upphengt wc og hvít innrétting við vask.
Eldhús er með eldri innréttingu, eldavél og viftu. Vínilparket á gólfum.
Stofa er með vínilparket á gólfi og útgengt út á verönd sem snýr í suður.
Herbergi er með vínilparket á gólfi.
Útigeymsla undir stiga efri hæðar fyrir utan íbúðar.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.