Melbraut 19, 250 Garður
65.900.000 Kr.
Einbýli
4 herb.
131 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
59.550.000
Fasteignamat
44.650.000

M2 fasteignasala kynnir í einkasölu - Nýlega uppgert 4.herbergja einbýlishús við Melbraut 19 í Garði, Suðurnesjabæ.

* Gólfhiti er í öllum gólfum. 
* Nýjar innihurðir og gólfefni
* Eldhús og baðherbergi endurnýjuð
* Þakjárn yfirfarið og málað
* Ytrabyrði einangrað og múrað og málað að nýju
* Gluggar og útihurðir endurnýjaðar
* Endurnýjuð rafmagnstafla og tenglar

Eignin Melbraut 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-5662, birt stærð 131.7 fm. Fateignamat næsta árs 49.300.000 kr.


Forstofa er með flísar á gólfi.
Innaf forstofu er geymsla, flísar á gólfi og þar inni er nýleg rafmagnstafla. 
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. 
Eldhús er með nýlegri innréttingu, gert ráð fyrir uppvöskunarvél, ofn og helluborð. Parket á gólfi og gert ráð fyrir borðkrók við glugga.
Þvottahús / bakinngangur með flísar á gólfi, og þvottaaðstaða innaf. 
Gestasalerni er innaf holi, flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting við vask og upphengt salerni. 
Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi. Hjónaherbergi, stórt barnaherbergi sem hægt er að skipta upp í tvö barnaherbergi og lítið barnaherbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu við vask, speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtugleri. 

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.