M2 fasteignasala kynnir í einkasölu: Mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð við Sunnubraut 19 í Garði, Suðurnesjabæ.
* 4 svefnherbergi
* Afgirt verönd með heitum potti
* Stór snyrtilegur bílskúr
* Mikið endurnýjað
144,2 fm. og bílskúr 53,3 fm. samtals 197,5 fm. Lýsing eignar: Forstofa með flísar
Gestasalerni er með flísar á gólfi og veggjum. Innrétting við vask og sturta með gleri.
Þvottahús með skáp, innréttingu og útgengt út í baklóð.
Þrjú barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með skápum án hurða og parketi á gólfi.
Eldhús er með eikarinnréttingu og eyju, ofn í vinnuhæð, helluborð og háfur.
Stofa er opin við eldhús, parket á gólfi og útgengt út á afgirta verönd með heitum potti.
Baðherbergi er með innréttingu við vask, hornbaðkari, flísar á gólfi og veggjum.
Bílskúr er með nýlegri hurð og hurðaopnari fylgir. Innangengt er úr húsinu. Mikið af gluggum og góð lofthæð. Nýlega málaður og nýlegt epoxy á gólfum.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.