Syðri-reykir 2, 806 Selfoss
14.900.000 Kr.
Sumarhús
1 herb.
29 m2
14.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
18.050.000
Fasteignamat
18.295.000

M2 Fasteignasala kynnir:

Sumarhús til flutnings - Biskupstungur


Til sölu er vandað 29,4 fermetra timburhús, byggt árið 2010, staðsett í Biskupstungum. Húsið er fullbúið og samanstendur af svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og sameiginlegri stofu/eldhúsi.
Frágangur hússins er fallegur og vandlega unninn: panill er á veggjum og í lofti, furuborð á gólfum, en vínilflísar á forstofu, baðherbergi og í sturtubotni. Gluggar og hurðir eru sérsmíðaðar og gefa húsinu einstakt yfirbragð. Þakið er klætt dúk og grasi sem skapar sjarmerandi útlit í anda íslenskra torfbæja.
Húsið er með fullkomna rafmagnstöflu, hitagrind og er núna tengt við hitaveitu. Forhitari er á neysluvatni fyrir aukin þægindi.
Húsið uppfyllir alla nútímastaðla byggingareglugerða. Það stendur á fjórum steyptum görðum og er tilbúið til flutnings á nýjan stað. Teikningar fylgja.
Þetta hús er tilvalið sem gestahús eða fyrir ferðaþjónustu. Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja sjarmerandi hús með fallegu yfirbragði á nýjum stað.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 421-8787 eða á netfanginu [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.