Kirkjuvegur 29, 230 Keflavík
69.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á pöllum
4 herb.
180 m2
69.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1930
Brunabótamat
35.250.000
Fasteignamat
49.000.000

M2 fasteignasala kynnir í einkasölu - Snyrtilegt einbýlishús á pöllum við Kirkjuveg 29 í Keflavík. 

* Húsið var klætt að utan og þakjárn endurnýjað ásamt gluggum árið 2010.
* Möl er í innkeyrslu en lóð er gróin með geymsluskúr.
* Góð staðsetning í gamla bæ Keflavíkur. 
* Snyrtilegur garður með tjörn.

* Lítill geymsluskúr er á lóð og einnig rúmgott gróðurhús.

Forstofa er rúmgóð með flísar á gólfi.
Baðherbergi í viðbyggingu er nýlegt og hefur flísar á gólfi og einum vegg, sturta, baðkar og innrétting við vask.
Eldhús er með hvítri eldri innréttingu, harðparket á gólfum.
Geymsluloft er yfir eldhúsi, stigi frá eldhúsi upp. 
Kjallari er geymsla með málað gólf, wc og baðkari.
Stofa er viðbygging sem bætt var við húsið 2010 með 6.metra lofthæð, harðparket á gólfi og gólfsíðum gluggum. Útgengt er út í garð frá stofu.
Svefnrými er innaf eldhúsi í svalahæð við viðbyggingu með harðparketi á gólfum og yfirsýn yfir stofu.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.