M2 Fasteignasala & Leigumiðlun kynnir í einkasölu - Gott 78,4fm iðnaðarbil við Hólmbergsbraut 17E í Hvalvík, Reykjanesbæ.
* Góð innkeyrsluhurð
* Laust 15.jan 2025Um er að ræða stálgrindarhús á steyptum sökkli klætt með yl-einingum.
Rýmið er merkt 0114 og gólfflötur er 78,4fm. Gólfhiti í plötu.
Húsið er stálgrindarhús á steyptum sökkli byggt árið 2017.
Stór innkeyrsluhurð er í rýminu ásamt inngönguhurð.
Húsnæðið hentar vel fyrir ýmsan rekstur og stutt er í flugþjónustusvæði Keflvíkurflugvallar.
Nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða á tölvupósti [email protected]