Huldudalur 7, 260 Njarðvík
92.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
0 m2
92.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
4
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
19.600.000

M2 fasteignasala kynnir í einkasölu - Raðhúsin við Huldudal 5, 7 og 9 í Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ.

Húsin eru 171,7fm samtals að stærð. Íbúð er 143,3fm og bílskúr 28,4fm.
Húsin skiptast í forstofu, gestasalerni, þvottahús, eldhús, borðstofa, stofa, baðherbergi, tvö barnaherbergi,
hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaðherbergi, geymsla og bílskúr.

Húsin skilast á byggingarstigi 5, Skilalýsing:


Lóð og teikningar
Lóðir að Huldudal 5-9 skilast tyrftar, akstursleið inn lóðir verða malbikuð en bílastæði og gönguleið að
húsi verður hellulögð eða steypt. Lögð verður snjóbræðsla undir hellulögn (steypu). Aftan við íbúðir
verður jarðvegsskipt þar sem gert verður ráð fyrir palli ásamt lögnum fyrir heitum potti. Skýli fyrir þrjár
ruslatunnur verða við innkeyrslu hverrar íbúðar.
Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og
hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.

Gröftur og fylling
Grafið er niður á fast og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð.

Sökklar
Sökklar eru um 600mm háir. Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli, K10 kambstál í
tengijárnum við plötu. Sökkulveggir eru eingraðir að innan með 16kg/75mm plasteinangrun. Steypa er
af gerðinni S-250.

Botnplata
Einangrun undir plötu er 24kg/m3 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind.
Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata er fínslödduð, Kaupandi gæti þurft að flota undir gólfefni.

Lagnir
Skolp-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Búið verður að ganga frá
neysluvatnslögnum, rör í rör í gólfplötu og gólfhitalagnir verða frágengnar og tengdar við kistu en
kaupendur sjá um stýringar/kerfi vegna gólfhitans.
Einnig eru ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð innifalin. Hverri eign verður skilað með
loftræstikerfi með varmaendurvinnslu, með innblæstri í öll svefnrými og miðrými eignar og afsogi af
salernum, þvottarhúsi og eldhúsi. Gert er ráð fyrir sér afloftun í bílageymslu.

Raflagnir
Inntakstafla fyrir rafmagn verður komin og verða raflagnir frágengnar í loftum og veggjum en án allra
rofa og tengla

Útveggir
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir 12mm osb plötum að
utan til stífingar. Útveggir eru klæddir að utan með 1mm stuðlaálklæðningu í gráum lit. Að innan verða
allir veggir einangraðir og klæddir með gipsi, spartlaðir og grunnaðir

Innveggir
Allir milliveggir verða komnir upp, einangraðir og klæddir með osb plötum og gipsi, spartlaðir og
grunnaðir.

Þak og loft
Þak er með tvöföldum ásoðnum þakdúk. Þakkantur er klæddur með álklæðningu í saman lit og húsið.
Loft verða einnig eingangruð, spörtluð og grunnuð..

Gluggar og hurðir
Gert er ráð fyrir gluggum og hurðum úr Ál/timbri í svörtum lit að utan en frágangur í kringum glugga og
hurðir er úr áli í sama lit og utanhússklæðningin.

Opinber gjöld
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og
stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald þegar það kemur á við fullnægðarfrágang að innan.

Afhendingartími
Eignirnar skilast á byggingarstigi 5 . Fullbúin að utan og tilbúin til innréttinga að innan. Áætlaðir
afhendingartímar eru í Nóvember til Desember.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.