M2 fasteignasala kynnir í einkasölu - Raðhúsin við Huldudal 5, 7 og 9 í Innri-Njarðvík, Reykjanesbæ.
Húsin eru 171,7fm samtals að stærð. Íbúð er 143,3fm og bílskúr 28,4fm.
Húsin skiptast í forstofu, gestasalerni, þvottahús, eldhús, borðstofa, stofa, baðherbergi, tvö barnaherbergi,
hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaðherbergi, geymsla og bílskúr.
Húsin skilast á byggingarstigi 4 ( Fokhelt en fullkláraða að utan ), Skilalýsing:Lóð og teikningarLóðir að Huldudal 5-9 skilast tyrftar, akstursleið inn lóðir verða malbikuð en bílastæði og gönguleið að
húsi verður hellulögð eða steypt. Lögð verður snjóbræðsla undir hellulögn (steypu). Aftan við íbúðir
verður jarðvegsskipt þar sem gert verður ráð fyrir palli ásamt lögnum fyrir heitum potti. Skýli fyrir þrjár
ruslatunnur verða við innkeyrslu hverrar íbúðar.
Allar teikningar liggja fyrir þ.e. aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga- og
hurðateikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.
Gröftur og fyllingGrafið er niður á fast og fyllt í með grófri möl sem er þjöppuð.
SökklarSökklar eru um 600mm háir. Járnabinding er 2xK12 kambstál efst og neðst í sökkli, K10 kambstál í
tengijárnum við plötu. Sökkulveggir eru eingraðir að innan með 16kg/75mm plasteinangrun. Steypa er
af gerðinni S-250.
BotnplataEinangrun undir plötu er 24kg/m3 100mm plasteinangrun. Járnabinding er 6mm járnamottugrind.
Steypa er af gerðinni S-250.
Botnplata er fínslödduð, Kaupandi gæti þurft að flota undir gólfefni.
LagnirSkolp-og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Búið verður að ganga frá
neysluvatnslögnum, rör í rör í gólfplötu og gólfhitalagnir verða frágengnar og tengdar við kistu en
kaupendur sjá um stýringar/kerfi vegna gólfhitans.
Einnig eru ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garð innifalin. Hverri eign verður skilað með
loftræstikerfi með varmaendurvinnslu fylgir með óuppsett, með innblæstri í öll svefnrými og miðrými eignar og afsogi af
salernum, þvottarhúsi og eldhúsi. Gert er ráð fyrir sér afloftun í bílageymslu.
RaflagnirInntakstafla fyrir rafmagn verður komin og vinnurafmagn klárt.
ÚtveggirÚtveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir 12mm osb plötum að
utan til stífingar. Útveggir eru klæddir að utan með 1mm stuðlaálklæðningu í gráum lit. Að innan verða
útveggir einangraðir, plastaðir og lagnagrind tilbúin.
InnveggirEngir innveggir komnir upp.
Þak og loftÞak er með tvöföldum ásoðnum þakdúk. Þakkantur er klæddur með álklæðningu í saman lit og húsið.
Loft verða einnig plöstuð, einangruð og lagnagrind komin.
Gluggar og hurðirGert er ráð fyrir gluggum og hurðum úr Ál/timbri í svörtum lit að utan en frágangur í kringum glugga og
hurðir er úr áli í sama lit og utanhússklæðningin.
Opinber gjöldGatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og
stofngjald holræsa.
Inntaksgjöld vatns, rafmagns og hita eru greidd.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald þegar það kemur á við fullnægðarfrágang að innan.
AfhendingartímiEignirnar skilast á byggingarstigi 4 . Fullbúin að utan og fokhelt að innan.
Áætlaðir afhendingartímar eru í Nóvember til Desember.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.