M2 Fasteignasala & Leigumiðlun kynnir í einkasölu Heiðarholt 10, Reykjanesbæ
Um er að ræða 3. herbergja endaíbúð á 1. hæð fjölbýli.
Verönd útfrá stofu. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Nýleg eldhúsinnrétting og tæki.
Nýleg gólfefni á holi, eldhúsi og stofu.
Búið að endurnýja neysluvatnslagnir í húsinu.
Nánari lýsing eignar:Anddyri og hol, parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús, parket á gólfi, nýleg innrétting og tæki.
Stofa, parket á gólfi, hurð út á skjólgóða verönd sem snýr í suður.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi, innrétting. Aðstaða fyrir þvottavél að baðherbergi.
Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegu geymslurými.