Jötunsalir 2, 201 Kópavogur
159.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
6 herb.
210 m2
159.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
98.730.000
Fasteignamat
127.850.000

M2 Fasteignasala & Leigumiðlun kynnir í einkasölu - Glæsileg og mikið endurnýjuð 7 herbergja penthouse íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi með tvö stæði í bílageymslu, rúmgóðar svalir og mikið útsýni.

- SKIPTI SKOÐUÐ Á SÉRBÝLI Í SMÁRAHVERFI KÓPAVOGS -

* Eldhús frá HTH endurnýjað 2022 og heimilistæki frá Ormsson. 
* Borðplatan er úr Dekton stein frá Steinsmiðjunni Rein.
* Gólfefni harðparket endurnýjuð 2022 frá Parka.is
* Gluggar voru málaðir 2019.
* Nýlegur sturtuklefi í aukabaðherbergi 2021
* Nýlegir tenglar frá Gira úr gleri í opnum rýmum.
* Öll loftljós fylgja með eigninni
* Allar innihurðir ná uppí loft.
* Öll blöndunartæki á baði og eldhúsi hafa verið endurnýjuð.


Íbúðin er 207 fm (merkt 01-0702) og geymsla 3,0 fm (merkt 01-0122) samtals er íbúðin skráð 210,0 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Hol er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með parketi á gólfi, nýlegri innréttingu frá HTH með tækjaskáp og eyju með Dekton stein sem er bæði rispu- og hitaþolinn. 
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi, rúmgóðu fataherbergi og stóru baðherbergi innaf.
Stórt baðherbergi er innaf hjónaherbergi, sturta, svört innrétting við vask og baðkar. Upphent wc með nýlegri salernisskál. Flísar á gólfi og veggjum. 
Barnaherbergin eru 4 með parket á gólfum og skápum. 
Baðherbergi innaf holi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengt wc með nýlegri salernisskál, sturtuklefi og innrétting við vask.
Þvottahús er með parket á gólfi, hvít innrétting fyrir tæki í vinnuhæð
Geymsla nr.1 er í sameign í kjallara.
Geymsla nr. 2 er innan íbúðar, innaf holi. Flísar gólfi.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Tvö Stæði í bílageymslu og hleðslustöð í hvoru stæði fyrir sig fylgir.

Leik- og grunnskóli er í grendinni ásamt því að stutt er í alla þjónustu.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.